Langaði í hátíðlegan mat á áramótunum í staðin fyrir þynnkubana, svo ég ákvað að elda gúrm lambalæri. Eldaði fyrir okkur Aron og fór svo með restina í sveitina til mömmu og pabba, því maturinn var það góður að ég vildi að sem flestir fengju að smakka. Uppskriftin nýtist því fyrir 4-5 manns.
Efni:
Lambalæri: 1 stk (Mitt var 1.9 kg)
Sítrónur: 2 stk (bæði börkur og safi)
Rósmarín: 2 msk
Hvítlaukur: Heilt stykki!
Olía: 6 msk
Karteflur: 3 á mann
Rósakál: 4 á mann
Marinering:
- Flysja börkinn af sítrónunum og saxa smátt (reyni að fá sem minnst af hvítu með berkinum). Kreisti svo safann úr báðum og set í skál með berkinum. Saxa hvítlauk og rósmarín og set í sömu skál. Bæti við 4 msk af olíu og blanda öllu saman
- 2. Set lambalærið í poka og helli marineringunni yfir. Vef pokanum þétt utanum og læt liggja í klukkutíma. Eftir hálftíma sný ég leggnum við
Aðferð:
- Velti karteflum og rósakáli uppúr olíu, pipar og smá salti og set í ofnfast mót og inní ofn á 230 °C í 20 mín
- Þegar lærið er búið að marinerast tek ég eldfasta mótið úr ofninum, færi karteflur og rósakál til hliðar og smelli lærinu í miðjuna. Aftur inní ofn í 20 mín
- Eftir þessar 20 mín, tek ég karteflur og rósakálið burt, lækka í ofninum á 150°C og set lærið eitt aftur inní ofn í klukkutíma.
- Eftir klullara slekk ég á ofninum, tek lærið út og læt að hvíla í 20 mín. Á meðan lærið bíður geymi ég karteflurnar og rósakálið inní ofni svo þau nái upp hlýju aftur.
- Geri sallat á meðan og sósu úr pakka (tekur 3 mín)
- Set allt á disk og nýt í botn