Í lok mánaðarins-tortellini

Er ekki beint vaðandi í pening í lok mánaðarins, svo ég gerði mat úr því sem ég átti. Þurfið alls ekki að nota eitt eða allt að því sem ég notaði, heldur bara það sem þið eigið. Myndi ekki beint bjóða Óla forseta í þennan mat, en þetta gerði mig sadda og hamingjusama.

20160124_173045.jpg

Efni:
Tortellini: 1/2 poki (fæst allstaðar)
Brokkolí: smá bútur
Paprika: 1/2 (ég átti gæna, gott að nota rauða, gula osfr.)
Gular baunir: Slatti (átti niðursoðnar)
Hvítlaukur: 1 geiri
Gulrætur: 1 og hálf
Sveppir: 5 stk
Tómatmauk: 1 msk (má sleppa)
krydd: pipar

Sniðugt að nota: lauk, tómata, sveppi, spínat, beikon eða nákvæmlega það sem þið viljið eða eigið. Getið þessvegna beilað alveg á grænmeti og notað bara pítsasósu og/eða beikon. Ég átti ekki ost og notaði þessvegna fetaost. Mæli með osti..

Aðferð:

  1. Sker grænmetið niður smátt og steiki á pönnu uppúr smá olíu. Bæti tómatmauki við og hræri.
  2. Á meðan: Sýð tortellini í potti (8 mín: stendur á pakka).
  3. Þegar tortellini-ið er til, slekk ég undir grænmetinu, síja vatnið frá pastanu og set útá grænmetispönnuna. Blanda saman og set í skál
  4. Ríf ost yfir, eða nota fetaost

20160124_172950

Tortellini með sósu og osti

Í fyrradag var glatað veður, ég veik og kæró í útlöndum; svo ég komst ekki útí búð en átti auðvitað “ekkert” í skápunum mínum. Úr varð bragðgóð þriggja efna máltíð sem þurfti nákvæmlega enga fyrirhöfn.

Tortellini í skál
Tortellini í skál

Þetta er engan veginn besta máltíð sem ég hef fengið, en hún tók engan tíma og hún var góð. Sérstaklega þar sem ég át matinn yfir alltof spennandi sjónvarpsefni og hafði þessvegan ekki tíma til að leggja meiri metnað í matinn.

Efni(uppskirft fyrir einn);
Tortellini(ég kaupi það alltaf þegar ég sé það; endist endalaust og tekur engan tíma) ATH: á sumum pökum stendur “fyrir þrjá”, en í rauninni er það lítill matur fyrir 2.
Ostur; rifinn
Pítsasósa; eins mikið og þið viljið
Steinselja; ef á

Ég borða beisikklí allt úr skál
Ég borða beisikklí allt úr skál

1. Set heitt vatn í pott með olíu og salti, býð eftir að suðan komi upp og dömpa pastanu ofaní og bíð eins lengi og stendur aftaná pakkanum(11 mín).
2. Þegar pastað er soðið, sigta ég vatnið frá, set það í skál ásamt pítsasósu og rifnum osti. Strái steinsselju yfir ef ég á.
3. Nýt yfir sjónvarpsefni

Hakk og spagettý

Við erum að flytja á morgun svo ég nýtti tækifærið og eldaði allt sem ég átti í frysti og afganga úr ískáp. Úr varð klassíst spagettý(pasta) með hakki. Einföld klassík

Hakk og spagetty
Hakk og spagetty

Pasta; 100 gr. á mann
Hakk; 500 gr. Ég fann kindahakk á 200 kall, allt hakk virkar
Púrrulaukur; 7 cm-ish (hálfur laukur virkar líka)
Gular baunir; ein lúka(átti í frysti)
Frosið grænmeti; uþb. 100 gr.
Soya sósa; 1/2 msk.
Tómatpúrra(um 3 msk)
Krydd; oregano, paprika, pipar

Yfirsýn
Yfirsýn

1. Set heitt vatn í pott og sýð, bæti salti og olíu útí.
2. Steiki lauk, og set svo grænmetið útá þegar laukurinn virðist eldaður.
3. Set hakk útá pönnuna og brytja það niður
4. Þegar hakkið er orðið brúnt krydda ég, og set aukalega aðeins af soya sósu og tómatpúrru útá og hræri saman; salta samt ekki! því soya sósan er svo sölt 🙂
5. Hendi pastanu útí pottinn þegar vatnið sýður og sýð jafn lengi og stendur á pakningum, ekki lengur því ofsoðið pasta er hræðilegt.
6. Læt renna af pastanu, set það svo í djúpan disk og hrúga hakki ofaná, sem og parmesan osti.

nærmynd
nærmynd

+Tilvalið að borða tómata, gúrku eða salat með
+Ég set mega oft soya sósu út í hakk; mér finnst hún draga fram bragðið af kjötinu, þurfið eki mikið, en mér finnst gott að hafa aðeins af henni.

Carbonara úr því sem ég átti

Ég átti afganga svo úr varð alveg frekar hollt carbonara. Mega auðvelt og gott, munið bara að pipra nóg en ekki salta því beikonið er salt. 

Efni:
Pasta(um 100 gr. á mann)
Sveppir; það sem var eftir í öskjunni, ATH; þeir minnka við steikingu
Beikon; 6 strimlar-ish
Egg; 1
Rjómaostur; um 1 mtsk
Hvítlaukur; 1-2 geirar
Krydd: Svartur pipar; mjög mikið!
Ef á; Steinselja og litlir tómatar eða annað ferskt grænmerti

Carbonara-ish
Carbonara-ish

1. Sýð pastað/spagettý-ið
2. Steiki sveppi og hvítlauk, tek svo af pönnunni og steiki beikon (Vil ekki beikon fituna, svo þessvegna steiki ég ekki allt saman)
3. Brýt egg í glas og hræri saman við fullt af svörtum pipar og steinselju ef ég á. 
4. Þegar pastað er soðið tek ég vatnið af og bæti egginu útí og hræri vel, eða þar til eggið virðist eldað. Set svo sveppi og beikonið saman við og pipra meira.
5. Bæti við smá rjómaosti til að gera matinn meira djúsí, og sker niður litla tómata til að fá smá vítamín. 

Hrært egg með steinselju og pipar
Hrært egg með steinselju og pipar