Hef séð karamellupopp til sölu á mikinn pening, en gat búið það til sjálf á kannski 300 kall. Búin að skila lokaverkefninu mínu loksins, svo ég vildi tríta mig í döðlur yfir Harry Potter maraþoni
Efni:
Maísbaunir: 1 bolli-ish (eða örbylgjupopp eða tilbúið popp)
Karamella:
Púðursykur: 1 bolli (eða venjulegur sykur)
Rjómi: 1/2 bolli (venjulegur eða matreiðslu)
Smjör: 1 msk
Salt: eftir smekk
Aðferð:
- Poppa popp í potti (eða örbylgjuofni) og set til hliðar.
- Set púðursykur, rjóma og smjör á pönnu eða lítinn pott og kveiki á meðal háum hita
- Þegar allt byrjar að bráðna: hræri saman þar til bubblur myndast og karamellan er orðin brún og lyktar sjúklega vel
- Slekk undir og set poppið útá og hræri vel, svo karamellan þekur poppið
- Set á bakka eða disk og leyfi karamellunni að harðna 10-15 mín (má sleppa þessu)